| Verkflug |
|
Sérsniðnar lausnir Þyrlufélagið býður upp á hagkvæmar, sérsniðnar lausnir í þyrluflugi og hefur aðgang að tækjum, búnaði og sérþekkingu til að leysa nánast öll verk sem framkvæmanleg eru með þyrlum.Helstu verkefni Aðalstarfsemi Þyrlufélagsins er á sviði verkflugs sem flokkast m.a. í ljósmyndaflug og kvikmyndaflug. Meðal verkefna sem félagið tekur að sér eru: Fyrirtæki og einstaklingar hafa í auknum mæli farið út í að taka loftmyndir af eignum sínum og notað sem veggprýði í fyrirtækjum og á heimilum. Byggingaverktakar nota loftmyndir af framkvæmdum sínum í þeim tilgangi að skrá sögu fyrirtækja sinna og um leið byggingasögu landsins. Myndir segja meira en þúsund orð en loftmyndir hefja þá staðhæfingu til nýrra hæða. Í samstarfi við fagljósmyndara býður Þyrlufélagið upp á heildstæðar lausnir í hverskonar loftmyndatökum. Kvikmyndaflug í auglýsingagerð, kvikmyndum og sjónvarpsþáttagerð eru verkefni sem Þyrlufélagið sinnir og og státar af ágætri reynslu á því sviði. |
