| Žyrluflugnįm |
Flugskóli Íslands í samstarfi við Þyrlufélagið er fyrsti flugskólinn á Íslandi sem býður upp á þyrluflugnám samkvæmt flugreglugerðum Flugöryggissamtaka Evrópu, JAA. Í boði er þyrluflugnám til einkaflugmannsprófs á þyrlur.Þú mátt hefja flugnámið hvenær sem er en þarft að vera orðinn 16 ára til að fá flugnemaréttindi (Solo). Einkaflugmaður á þyrlu þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði: Námið er byggt þannig upp að nemandi situr bóklegt einkaflugmannsnámskeið og getur jafnhliða því flogið verklega hluta námsins. Námstíminn er um það bil þrír og hálfur til fjórir mánuðir. Ekki er nauðsynlegt að kunna á eða hafa próf á flugvélar til að geta byrjað að læra á þyrlu, en það hjálpar mjög mikið til. Þyrluflugmenn sem hafa áritun á Schweizer þyrlur geta leigt þyrluna okkar á hagstæðu verði.
Gjafabréf í kynnisflug í þyrlu er tilvalin afmælis eða tækifærisgjöf fyrir þá sem vilja gleðja sitt fólk með öðruvísi gjöf.
* Greiða þarf sérstaklega fyrir kennslu sem fer fram fyrir og eftir flug.
Réttindi
Inntökuskilyrði Flugskóla Íslands: Bóklegur hluti: Kvöldnámskeið: Er 225 kennslustundir (150 klukkustundir) að lengd, kennt frá kl 18:30 til kl 22:00 á virkum dögum og stendur í um 12 vikur. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til u.þ.b. 6 eininga í framhaldsskóla. Dagnámskeið/hraðnámskeið: Er 150 kennslustundir að lengd, kennt frá kl 14:30 til 20:00 á virkum dögum og stendur í um 6 vikur. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til u.þ.b. 6 eininga í framhaldsskóla. Fögin fyrir bóklegt einkaflugmannspróf eru: veðurfræði, flugreglur, flugeðlisfræði, mannleg frammistaða, almenn flugvélaþekking, siglingafræði, starfshættir í flugi, fjarskipti, áætlanagerð og afkastageta. Bóklegur hluti þyrluflugnámsins er kenndur sem viðauki við bóklega flugvélaflugnámið sem lýst er hér að ofan. Það námskeið er 43 kennslustundir (28,5 klukkustundir) þar sem kennd eru eftirtalin fög: almenn þekking á þyrlum, afkastageta og áætlanagerð, starfshættir í flugi og flugeðlisfræði. Verklegur hluti: Ljúka þarf minnst 45 fartímum í þyrlu, þar af minnst 25 tímum með kennara, minnst 10 einflugstímum og 5 flugtímum í eftirlíktu blindflugi. Einnig þarf að ljúka minnst 5 einflugstímum í yfirlandsflugi með a.m.k. einu yfirlandsflugi sem nemur 185 km (100 NM) og framkvæma minnst tvær stöðvunarlendingar á tveimur flugvöllum öðrum en brottfararflugvelli. Handhafar flugmannsskírteina á flugvélar, fisflugvélar, fisþyrlur, svifflugur og gyrocopter geta fengið allt að 6 flugtíma (PIC) metna til frádráttar af flugtímakröfum fyrir þyrluskírteini. Í lok náms þarf að standast verklegt færnipróf hjá Flugmálastjórn Íslands. Sendu okkur póst eða hringdu til að fá meiri upplýsingar. |
|||||||||||||||||||||||||||||
